Jæja nú er langt um liðið frá síðustu færslu enda lítið verið að gerast í veiðinni undanfarið. En bráðlega fer maður að taka hnýtingagræjurnar fram og þá fer þetta vonandi að glæðast aðeins. Þar sem ég náði nú að veiða mér nokkrar rjúpur í haust finnst mér tilvalið að reyna að nýta fjaðrirnar úr þeim í flugur og mun leyfa þeim sem nenna að fylgjast með þegar ég fer að vinna í því að gera fjaðrirnar nothæfar með hreinsun, þurrkun og litun og svo hvernig þær koma út sem hnýtingaefni. En það verður samt að bíða þar til eftir áramót. Þangað til langar mig að deila með ykkur vefsíðu sem hefur að geyma skemmtilegar leiðbeiningar um fluguveiði. Fullt af vídeóum úr smiðju Orvis manna og þó að margt þarna sé frekar „basic“ þá er alltaf gott að rifja upp grundvallaratriðin
Smellið hér til að skoða fluguveiðileiðbeiningar Orvis á netinu
Færðu inn athugasemd