Frábært veður en engin veiði. Margt reynt og eini fiskurinn sem ég varð var við var stærðar lurkur sem elti super tinsel hjá mér alveg upp að lykkju úti við Hljóðasteina og svamlaði svo á brott þegar hann hafði tekið hring í kringum lappirnar á mér. Reyndi líka aðeins við Flekkudalsárósinn og að lokum á tanganum við bátavíkina. Á tanganum voru nokkrir beitukallar að fá fiska en þeir voru að fara þegar ég kom þangað og máfagerið að koma til að tína upp leifarnar eftir þá þannig að það var ekki sérlega kræsilegt að veiða þar.
[…] Svar: Jú, ætli það sé ekki nærtækast. En hefði maður slysast til að krækja í einn, þá hefði kæling aflans ekki verið vandamál Annars var ég að spá í að hvort ekki væri hægt að fá svona hóp-meðferð því Svarti Zulu var greinilega á þessum slóðum, rétt á eftir okkur eins og sjá má á blogginu hans hérna. […]
Sama sagan hjá okkur, vorum gengt beituköllunum sem máfurinn þekki greinilega vel því þeir voru ‘stand-by’ á víkinni þegar við fórum. Ég sá einn fisk sem eitthvað var að flækjast en hann vildi ekkert sem ég bauð á móti beitunni.