Manni finnst það ekki alveg hljóma rétt að þessi fluga hafi verið „hnýtt“ enda kom hvergi nálægt henni þráður né hnútur. Það sem ég nota í þessa er eftirfarandi: Svartur vír, Zap-a-gap lím, UV lakk og tilheyrandi ljós, rauður og svartur túss og að lokum Hard-as-nails naglaherðir. Mér finnst rauði tússinn koma sérstaklega vel út í flugunni og á klárlega eftir að fara og ná mér í fleiri liti til að prufa í svipuðum flugum. Nauðsynlegt er að lakka að lokum yfir UV lakkið því það verður alltaf smá klístruð húð á því eftir herðingu. Gott er að nota til þess þunnt flugulakk eða efnið sem ég nota, Hard-as-nails en það fæst í Hagkaupi
ertu að nota Loon UV lakkið?
Já er með Loon clear fly finish thin
æðislegt efni