Feeds:
Færslur
Athugasemdir
Orange Big eyed bugger

Orange Big eyed bugger

Oliver Edwards er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég var að horfa á myndina hans um straumfluguveiðar um daginn þar sem hann notaði stóreygða útgáfu af Wooly bugger. Ég las mér aðeins til um þetta og upp úr krafsinu kom sú kenning að ránfiskar eru mjög uppteknir af augum bráðarinnar og þau geti verið kveikjan að árás á bráðina. Og því sé tilvalið að ýkja augun duglega til að ná fram þessu viðbragði. Big-eyed bugger eins og ég hnýtti hann er í raun bara nobbler með stórum augum og epoxy haus. Ennfremur þyngdi ég flugurnar að framan með tungsten mottu frá Veniard til að fá fram hreyfinguna sem framþungar flugur eins og nobblerinn hafa. Ég hef mikla trú á þessum flugum (var að hnýta þær, hef ekki prufað þær enn) sem og annari flugu sem O.E. notar í sömu mynd og ég mun taka fyrir mjög bráðlega.

Fleiri litir

Fleiri litir

Skelltum okkur félagarnir og skoðuðum Bugðu frá ósi upp að Olís í Norðlingaholti. Mikið af seiðum í ánni og sáum nokkra álitlega urriða i ánni líka. Fengum reyndar ekki neinn til að taka og fiskurinn gríðarlega styggur. Hef samt hug á að kíkja aftur seinna og reyna nokkra staði þarna og þá helst með þurrflugunni.

Elliðavatn 7. júlí.

SkulliNú ætla ég að gerast svolítið dramatískur í frásögn. Stundum lendir maður í moki. Þá getur verið gaman en ég verð að segja að ég kann eiginlega betur að meta ferðir eins og þá sem ég fór á sunnudag upp í Elliðavatn en þar voru gæðin en ekki magnið i fyrirrúmi. Ég var mættur kl. 8 á bakkann og loksins var hlýr morgun í höfuðborginni. Ég sá fisk vera á hreyfingu, étandi eitthvað í yfirborðinu og smellti lítilli léttri púpu undir. Ekki vildi fiskurinn hana svo ég skipti. Og skipti aftur. Og aftur. Ég prófaði haug af þessum hefðbundnu „Elliðavatnspúpum“ og ekki högg. Veiddi bæði niðri við botn og uppi við yfirborð. Strippaði á hratt og hægt, með rykkjum og jöfnum drætti og ekkert! Færði mig um set og Halda áfram að lesa »

SkulliÞar sem staðan er sú þessa dagana að ég kemst ekki langt frá höfuðborgarsvæðinu ákvað ég að reyna að herja svolítið á hið nýja veiðikortsvatn, Elliðavatn, núna í júlí. Ég er búinn að fara alloft en verð að segja að ég hef ekki uppskorið nein ósköp og núllað oftar en ekki. En ég er búinn að pæla svolítið í vatninu, veiðistöðunum og því hvenær og við hvaða aðstæður ég hef verið að fá tökur/fiska. Ég hef til að mynda ekki fengið fisk ef fiskur er ekki að sýna sig í yfirborðinu og þó hef ég mikið reynt. Í öllum þeim ferðum þar sem ég hef gert einhverja veiði er fiskur að éta í yfirborðinu og þá hef ég reynt að líkja eftir því sem hann er að éta. Ef fiskur er ekki að sýna sig eitthað hef ég ekki fengið eitt einasta högg.
Eða hvað? Tökurnar sem ég hef verið að fá (þegar fiskur er að sýna sig)  hafa Halda áfram að lesa »

Kibbi Glókollur #12

Kibbi Glókollur #12

Skellti mér í Kjósina í dag milli kl 2 og 6. Byrjaði við Flekkudalsárós og varð fljótt var við fisk. Náði að setja í þrjá þar á Copper John #14 og af þeim fengu tveir frelsið aftur sökum smæðar. Þar gerðist líka það furðulega atvik að ég setti í fýl. Á flugi. Það var töluverð gola og fýlarnir voru að sveima allt í kringum mig þarna og einn þeirra var að taka dýfu fyrir framan mig þegar ég var að leggja fluguna á vatnið og tókst að festa sig með tilheyrandi brotlendingu í vatnið. Það var þá lítið annað fyrir mig að gera en að draga hann inn og klippa tauminn eins nærri honum og ég þorði svo að ég fengi ekki æluna úr honum yfir mig. Hann flaug á brott með sært egó og ég vona að honum heilsist sem allra best bara. Seinna færði ég mig út að Hljóðasteinum og náði tveimur urriðum í viðbót þar en aðeins annar þeirra var nógu stór fyrir silungapokann svo að hinn fékk frelsi. Ég fékk mikið af tökum yfir daginn, mest á Copper John og Kibba með orange kúlu en líka á Krókinn og svartan Nobbler. Fiskarnir sem ég hirti voru 36 og 39 cm og voru nokkuð skemmtilegir á stöng #4. Og ég er eiginlega á því að sú stangarstærð sé bara nokkuð passleg í þetta vatn þar sem þarf í raun ekki að þenja köstin neitt langt út, fiskurinn í smærra lagi og aðgengið er þannig að maður getur oftast verið með hagstæða vindátt.

13. júní Hólm…

true storyÆtlaði að taka góðan könnunarleiðangur á Hólmsána í kvöld en var rétt byrjaður að veiða fyrsta hylinn þegar mér tókst að detta í einhvern bévítans læk sem rennur í ána og rennbleyta mig 🙂 Reyndi nú samt slatta af flugum til viðbótar áður en ég gafst upp og dreif mig heim með fötin í þurrkarann. Sá samt fiska í ánni og það er þó eitthvað.

Með flottan urriða úr Austurá

Með flottan urriða úr Austurá

Um síðustu helgi var vegurinn á Arnarvatnsheiðina úr Miðfirði opnaður. Ég hafði aldrei komið á heiðina áður en lengi langað að prófa þannig að mér fannst tilvalið að láta slag standa og vera með fyrstu veiðimönnum á heiðina þetta sumarið. Við fórum tveir saman úr Reykjavík á laugardagsmorgni og vorum komnir uppeftir um eittleytið. Þá tók við að koma sér fyrir í kofa og græja veiðidótið. Þetta svæði sem við vorum á er það sem gjarnan er nefnt Arnarvatnheiði norðanmegin og fellur undir Veiðifélag Arnarvatnheiðar og Tvídægru. Helstu vötn á svæðinu eru Arnarvatn Stóra, Réttarvatn, Austur- og Vestur Grandalón og nokkur fleiri. Af ám á svæðinu er helst að nefna Austurá, Skammá og Geiraldslæk. Fyrir utan fyrrnefnda veiðistaði er fullt af allskonar lækjum og tjörnum á svæðinu sem halda fiski. Ekki var bílfært inn að Skammá og Réttarvatni þegar við vorum á svæðinu vegna bleytu. Halda áfram að lesa »

Elliðavatn 12. maí

Ástarpaddan

Ástarpaddan

Jæja. Nú var maður búinn að fara tvær fisklausar ferðir í Vífó og Elliðavatn þegar hann gaf sig loksins í dag í Elliðavatni. Það var allnokkur gola og sólríkt í dag og ekki neitt rosa veiðilegt en við reyndum fyrir okkur Vatnsendamegin í vatninu og ég hafði tvo urriða upp úr krafsinu, 39 og 43 cm. Var að prófa nýja flotlínu á sexuna mína, Joan Wulff Signature, og var ekki vonsvikinn enda eru línurnar frá Royal Wulff í toppklassa. En hvað um það. Fiskarnir tóku báðir flugu sem ég var að bæta nýrri í boxið hjá mér í vetur, annar tók Chironomid púpuna en hinn Ástarpödduna. Báðar nr. 12. Það var hellings orka í þessum fiskum, voru báðir silfraðir og fallegir og annar þeirra var spikfeitur. Og ég meina sko spikfeitur. Eins og amerískur fótbolti í laginu. Í maganum á þeim var að finna ógrynni af mýflugupúpum og mér sýnist ekki beint skorta ætið þarna í Kópavoginum.

SkulliTókum eina morgunstund í Helluvatni í brakandi blíðu en enginn var aflinn. Kíktum aðeins við í Vífó líka en stoppið var stutt og við fórum með öngul í rassi heim á leið.

Elliðavatn 3. maí

SkulliÁkvað að skella mér í smá veiði í dag þar sem ég á frí. Fór upp í Elliðavatn og tók nokkur köst við brúna en færði mig fljótlega inn í Helluvatn og kastaði í nokkra stund í Kerið þar sem Suðuráin rennur í vatnið. Ekki var neitt líf að sjá þar svo ég færði mig inn með vatninu norðan megin. Þar setti ég í einn urriða á svartan nobbler og landaði honum. Hann var mældur 47 cm áður en hann synti til baka. Samkvæmt töflunni góðu er þessi fiskur þá um kíló að þyngd.  Fór svo og reyndi aðeins meira við brúna en varð ekkert meira var. Mun kanna þetta svæði betur á næstu dögum meðan ég bíð eftir að hlýni nóg til að ég nenni á Þingvelli.